|
15.01.2007 23:19:19 / elvaba
Sæl öll sömul
Vil byrja aftur á nýju svæði. endilega kíki á
www.blog.central.is/skelfan
Vona þið haldið áfram að fylgjast með mér þar
»
19.09.2006 23:06:33 / elvaba
Jæja þá er kella loksins komin aftur eftir smá pásu...
Byrjaði í boot camp í dag og ómægod!!! Þetta er ekkert smá erfitt!!
fæ sko svakalegar harðsperrur á morgun!!
Fylgir þessu líka stíft matarprógramm sem leyfir einn nammidag í
viku.. !!! Vona það gangi betur en DDV... Get þetta bara hreinlega
ekki lengur og núna er sko komið að því að taka á þessu!!!
Hvernig gengur ykkur'?? Einverjir enn að blogga??
»
19.09.2006 23:05:56 / elvaba
Jæja þá er kella loksins komin aftur eftir smá pásu...
Byrjaði í boot camp í dag og ómægod!!! Þetta er ekkert smá erfitt!!
fæ sko svakalegar harðsperrur á morgun!!
Fylgir þessu líka stíft matarprógramm sem leyfir einn nammidag í
viku.. !!! Vona það gangi betur en DDV... Get þetta bara hreinlega
ekki lengur og núna er sko komið að því að taka á þessu!!!
Hvernig gengur ykkur'?? Einverjir enn að blogga??
»
04.09.2006 11:23:16 / elvaba
Jæja.. langt síðan ég skrifaði eitthvað seinast.. Smá uppgjafar
tilfinning í mér varðandi DDV. gerði mér þvílíkar vonir, en virðist
ekki ná að halda þetta út.
Dagarnir byrja alltaf alveg rosalega vel og veit ég að ég borða
jafnvel of lítið, ef eftir vinnu, er ég orðin svo svöng og þá fæ ég
mér alltaf eitthvað sem er ekki leyfilegt samkvæmt DDV !!! Þannig
að vigtin hefur ekki verið upp á sitt besta upp á síðkastið.
Hugurinn er þó á fullu í rétta átt og get ég ekki beðið eftir
því að byrja í Boot campinu, finnst leiðinlegt að þurfa að bíða í 2
vikur!!!!
Veit að maður á að skila inn matardagbók til þjálfaranna og ætla
ég sko að nýta mér það!!!!
Var bara mjög dugleg um helgina!!! Fór í 2 tíma göngu í
gær!!!!
»
01.09.2006 07:27:13 / elvaba
Eins og ég átti von á var vigtin hreint og beint ömurleg í gær!!!
Kristín talaði um að ástæðan gæti verið hið mánaðarlega sem gæti
alveg passað.
Varð bara svo rosalega fúl og langaði bara í eitthvað gott að
borða. Tókst þó að halda mig á mottunni það sem eftir var dags.
Þegar leið á kvöldið fór líkaminn þvílíkt mikið að kalla á nammi,
en !!! einhver sérstök auka orka kom upp og ég lifði af án þess að
fá mér nammi!!! Fór því að sofa með góðri tilfinningu eftir mjög
góðan dag.
Skil þetta ekki enn. Venjulega ef mér líður svona illa, þá bý ég
ALLTAF til einhverja afsökun til að fá mér óhollt, sit svo með
samviskubit uppi í sófa og langar helst að grenja. En eitthvað
gerðist í gær, ég sagði við sjálfa mig, nei nei ekkert nammi núna,
sjáum til um helgina.. Held að þetta með helgina hafi bjargað mér.
Ef ég hefði hugsað; nei nei ekkert nammi núna og ekkert nammi næstu
mánuðina, þá hefði ég pottþétt fengið mér eitthvað, af því ég var
hvort sem er svo þung.. Skiljiði mig????
Humm veit ekki hvort þið skiljið, en einn dagur í einu!!
»
30.08.2006 15:11:14 / elvaba
Góðan og blessaðan daginn,, hvernig gengur illur öllum??
Hefur einhver ykkar prófað þetta boot camp dæmi?? Held að svona
hreyfing henti mér fullkomlega, einhver til að pína mann áfram og
keppnisskapið á milljón.. Var nefnilega að skrá mig á námskeið sem
hefst í september og er ég að spá hvort ég hafi gert einhvern
stóran skandal með því!!! hummm!!!
Kemur í ljós líklega!!
Hvernig gengur ykkur??
Mataræðið er bara mjög mjög fínt hjá mér.. En verð samt svoldið
svöng seinnipartinn, verð bara að borða oftar!!!
Svindlaði aðeins í morgun og steig á vigt, þó að formleg vigtun
sé ekki fyrr en á morgun hjá DDV og haldiði að vigtin hafi ekki
bara farið UPP !!!!! hvað er eiginlega málið með það?? skil það
bara hreint ekki!!! er í ALVÖRUNNI búin að vera dugleg!!! jæja
sjáum hvað vigtin segir á morgun
»
28.08.2006 13:09:17 / elvaba
Jæja þá er helgin liðin og var hún ekkert alslæm hjá mér.. Er þó
ekki viss um hvort vigtin hafi farið eitthvað mikið niður á meðan á
helginni stóð.. Fer í vigtun næsta fimmtudag og ÆTLA mér að fara
niður niður niður niður niður
Hef verið ansi dugleg í grænmetinu sem hefur ávallt verið erfitt
fyrir mig. Blanda bara nokkrum vínberum eða jarðaberjum við og
volla.. nammi namm
Hef ekki enn náð að drullast í ræktina, er bara ein af þeim sem
þarf að hugsa um eitt í einu, ná sem sagt mataræðinu á rétt ról
fyrst
»
26.08.2006 13:06:30 / elvaba
jæja loksins gerðist eitthvað í vigtunarmálum. Hef verið mjög
dugleg að borða grænmeti miða við hvernig ég er venjulega!!! Tek
með mér grænmeti í vinnuna í boxum með smá jarðabergjum eða
vinberjum út í nammi nammi namm!!
Vigtin sýndi 77,4 !! nokkuð ánægð með það
Hef verið að væla yfir því að hafa ekki misst nein kíló en skv
mínum skráningum hafa farið 2 kíló á einum mánuði!! Ætla þvi bara
alveg að vera sátt við það!!
Koma svo.. kommentið.. gott fólk
»
25.08.2006 09:35:42 / elvaba
jú jú .. þyngdist þó allavega ekki. Stóð bara í stað og fékk mikið
pepp frá Kristínu hjá DDV.. Held að þetta sé bara að koma hjá mér.
Út ALLA vikuna hef ég tekið með mér í vinnuna heimatilbúið salat,
alveg fullt fullt af grænmeti!!! Þannig að það er allavega plús.
Það er búið að taka mig heilar 2 vikur að komast á skrið með þetta
DDV, en þetta hlýtur að fara að koma!! Var einmitt að kynna mig
fyrir yngstu nemendunum í skólanum (nýr vinnustaður hjá mér) og þá
sagði einn: Ertu ólétt??? hummm.. algjörar snúllur og svakalega
hreinskilnar.. !! Tók þetta nú alls alls ekki illa en þetta ýtti
aðeins við mér.. Var nefnilega stundum spurð að þessu hér áður fyrr
þegar ég var að nálgast 90 kílóin, þar sem ég fitna helst um
magann.. En þegar ég náði mér niður í 73 kíló þá var maginn engan
veginn eins stór.. Þetta ýtir sem sagt við manni til að standa
sig!!! Vil ekki vera þekkt sem konan sem er kannski ólétt og enginn
þorir að spyrja!!!! Þannig að : NEI ég er ekki ólétt!! og ég ætla
mér alls ekki að líta út eins og ég sé ólétt Bæ þe vei finnst
reyndar óléttar konur lang lang lang flottastar, og hef sjálf
aldrei verið eins flott eins og þegar ég var ólétt.. en auðvitað
ekkert vit í því að líta þannig út þegar ekkert barn er að koma
eftir einhverja mánuði!!
»
23.08.2006 14:23:23 / elvaba
Ég bara léttist ekkert!!! og vigtun á morgun!!! dísus 
Hef bara verið nokkuð dugleg og haldið mig 90% við DDV.. eini
vandinn er grænmetið.. Verð að bæta úr því... þetta gengur ekki
svona lengur!!
En jæja, vigtun á morgun, sjáum til hvað setur. Ætla ekki að
gefast upp þó að ég hafi ekki lést mikið... geri bara enn betur
næst!! !og hananú
»
21.08.2006 17:37:39 / elvaba
Jæja fór út í hagkaup í vinnunni í dag og keypti minn eigin mat.
Síðan ég byrjaði í nýju vinnunni þ.e. fyrir viku síðan, hef ég bara
borðað það sem er í boði eins og allir hinir. Bara svona af því
maður er að læra inn á staðinn, fá stað inn í ískáp og svona. Núna
keypti ég mér aftu á móti AB mjólk, grænmeti, og fullt af ávöxtum.
Er því í raun hætt að borða brauðið í kaffinu og hádegismatinn sem
er í boði nema þegar eitthvað nammi gott er í boði eins og
fiskur!!! hi hi hi
Er einhver hér sem hefur prófað Boot camp??? langar svolítið að
prufa, en er ekki í mjög góðu formi..
»
20.08.2006 11:18:09 / elvaba
Helgin hefur bara gengið ágætlega. Ekki dottið í nammiát eins og
gerist stundum. Hlakka svo bara til að halda afram að taka mig á út
vikuna og mæta í vigtun næsta fimmtudag!!
Var í brúðkaupi í gærkvöldi og náði ansi vel að halda mig á
mottunni, var meira að segja farin áður en kökur voru bornar á
borð, sem er auðvitað mjög mjög dónalegt, að fara á undan
brúðhjónunum, en ég var bara ekki með pössun lengur, enda
menningarnótt og sonna..
Slapp því alveg við kökuát hi hi hi...
Gengur bara a´gætlega á DDV, en á erfitt með að borða allt þetta
grænmeti!!!! Á einhver annar í vanda með það??
»
18.08.2006 19:30:58 / elvaba
Vá 4 dagar frá síðasta bloggi!! Fór í DDV vigtun í gær og stóð bara
næstum því í stað, fór reyndar aðeins upp, um nokkur grömm... en..
what a fuck.. spjallaði bara aðeins við þær þarna niðri frá, sagði
þeim frá síðastliðnum dögum og þær sögðu mér bara að taka á því
núna, sem ég og geri!!!!!
Hef bara verið ansi dugleg í grænmetinu og ávöxtunum ef ég segji
sjálf frá....
Hvernig gengur ykkur öllum?? ætla að kíkja á blogg rúnt í kvöld..
»
14.08.2006 09:31:50 / elvaba
Jæja, þá er þessari fyrirfram ákveðni sukkhelgi lokið. Mikið var í
gangi, svo sem vinnudjamm, partí, 8 ára trúlofunarafmæli hjá mér og
manninum (já... og við erum ekki búin að ganga upp að altarinu
uhummm) og fleira og fleira.
Ákvað að byrja samt á DDV fyrir helgi, svo ég myndi kannski ná að
halda mér aðeins á mottunni. En.... það gekk svona la la la..
fylgdi engan vegin DDV um helgina en ætla að gera það framvegis,
ætla ekki einu sinni að segja ykkur hvað vigtin sagði í morgun,
Auðvitað á maður ekkert að vigta sig eftir svona helgar, vigta mig
bara í vigtun hjá DDV, en ég bara varð!! ég varð að fá að sjá
afleiðingar svona helgar, því trúið mér, ég á oft svona helgar!!!
og skil síðan ekkert af hverju ég grennist ekki, þó ég sé dugleg á
virkum dögum. En það bara dugar ekkert.. Nú hef ég séð svart á
hvítu hvað svona helgar geta gert og eyðilagt mikið. Ætla ekkert að
vera að væla of mikið yfir því, bara spíta í lófana og halda áfram.
Er að hefja störf á glæ nýjum vinnustað á morgun, í skóla, og
hlakka mikið til og kvíði fyrir!!! verð dugleg að mæta í vitgun og
fundi ýmist í hádegishléinu eða eftir skóla - vinnu 
Gangi ykkur öllum vel í nýrri viku!!
»
11.08.2006 16:57:53 / elvaba
Jæja dagurinn í gær gekk svona 99% DDV lega séð... Var komin á
þvílíkan sykurbömmer og fékk mér þá nokkrar rúsínur, veit að þær
eru ekki leyfðar. En þetta er bara mín leið til að koma mér niður á
gott sykur plan hi hi hi..
Dagurinn í dag hefur gengið príðilega, hef borðar of lítið ef
eitthvað er, þarf því að bæta mjólkuskammti og grænmeti við í
kvöldmatinn... extra grænmeti þá í kvöldmatinn hi hi
Vigtaði mig í morgun og sýndi vigtin 78 kíló!!! vissi það svo sem
alveg að hún hafði farið aðeins upp á við. En hef tekið fyrsta
skrefið í því að bjarga því núna með DDV
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|